Daggadúa – Big in Japan

Konnichiwa!

Seint blogga sumir en blogga þó 23/02/2009

Flokkað undir: Uncategorized — daggadua @ 7:15 PM

Hædíhó allir saman! :) Afsakið þetta gífurlega bloggleysi, það er bara búið að vera ooof mikið að gera síðustu vikur!  Einnig hefur nú ekkert mikið markvert verið að gerast hjá okkur fyrir Tokyo-ferðina. Allir virkir dagar eru nokkuð svipaðir, erum á labbinu frá morgni til kvölds, hjólum í búðina eða á Orange-Jam, borðum kvöldmat, horfum á nokkra sjónvarpsþætti og steinrotumst hehe. Það er nóg að gera í verkefnunum okkar beggja og okkur finnst tíminn fljúga alltof hratt hjá!

Eníhú, það er nú samt búið að vera mjög skemmtilegt inn á milli og þar sem það er orðið svo langt síðan ég bloggaði síðast, þá ætla ég nú bara að koma með smá highligt af því sem undan er gengið:

3. febrúar, þriðjudagur

Þetta kvöldið var okkur boðið út að borða með vinum hans Makino-san á litlum sætum stað í Takamatsu sem heitir Kimama-Tei. Makino-san var búinn að vera að rifna úr spenningi fyrir þessu kvöldi í um heila viku því hann hlakkaði svo til að kynna okkur fyrir vinum sínum sem eru víst mjög háttsettir í Takamatsu, allt frá embættismönnum upp í forstjóra flugfélags. Eigandi staðarins er vinkona hans og var ekkert smá yndisleg, bar hvern girnilega réttinn á borð á fætur öðrum. Eins og venjulega þá var dælt í okkur áfengi til að sýna hvað við getum drukkið mikið án þess að blikka hahaha! Við stóðumst það próf með glæsibrag held ég :) Við erum að verða eins og svona partýtricks hérna hehe!!

img_2128

Það var sem sagt mikið borðað og mikið hlegið þetta kvöldið og við slóum svo sannarlega í gegn. Í lok kvölds ákváðum við að kyssa bara alla og knúsa til að þakka þeim fyrir kvöldið, sem er svo sannarlega ekki siður hérna í Japan! Haha, fyrst vissi ég ekki hvert sumir ætluðu, en fljótlega voru allir bara byrjaðir að knúsa hvern annan skellihlæjandi! Köllunum fannst þetta alveg mega-fyndið og knúsuðu hvorn annan í kross hehe. Held að þeir hafi bara haft gott af því að losna aðeins við stirðleikann og kurteisina ;)

 

Ég tók kallana bara traustataki haha!

Ég tók kallana bara traustataki haha!

8. febrúar, sunnudagur

Þessi dagur var nú bara afleiðing af þriðjudeginum því að vinum hans Makino-san leist svo svakalega vel á okkur að þeir buðu okkur í smá sunnudagsreisu. Í för voru tveir karlar, Makino-san og síðan vinkona hans frá veitingastaðnum. Snemma um morguninn hittumst við öll niðrá bryggju í Takamatsu og tókum ferju til Shodoshima-eyju sem er um hálftímasiglingu frá borginni.  Þar var farið með okkur í onsen (japanskt spa) sem var alveg frábært! Þetta var svona nakið-spa og karlar og konur í sitthvoru lagi. Einn potturinn var úti og með útsýni yfir hafið og nærliggjandi eyjur. Maður hefði getað verið þarna úti allan daginn, þetta var svooo yndislegt! :) Eftir hádegismat og smá meira tjill fórum við til baka til Takamatsu og fórum á Takamatsu Museum of Art og sáum skúlptúrsýningu eftir Masayuki Nagare sem er heimsfrægur listamaður. Við vorum svo ótrúlega heppnar að listamaðurinn var akkúrat staddur á safninu þegar við komum og vinkona Makino-san var einu sinni að vinna fyrir hann þannig að hún kynnti okkur fyrir honum.

japan3_0251

Hádegismaturinn í onseninu

Eftir sýninguna buðu þau okkur út að borða á kínverskum/japönskum stað þar sem eins og venjulega er bara eitt borð inni á staðnum hehe!! En við þetta borð var maður með lappirnar í svona holu sem er undir borðinu og er mjög gaman að borða við þannig :) Maturinn var alveg frábær og við áttum mjög skemmtilega kvöldstund. Þessi sunnudagur var því alveg frábær, alveg frá morgni til kvölds, og við prísuðum okkur sælar yfir því að hafa hitt allt þetta yndislega fólk.

 

14. febrúar, laugardagur

Valentínusardagurinn sjálfur! Japanir taka oftast alls konar siði frá vesturlöndum, eins og t.d. jólin, St. Patricksday og fleira, bara af því bara hahaha. Eins og með jólin, þá halda þeir sko ekki upp á þau þannig séð, en nýta sér allt þetta skemmtilega eins og skreytingarnar og jólaljósin. Einnig hafa þeir tekið Valentínusardaginn og gert hann að sínum, það er, á þessum degi eiga sem sagt konurnar að gefa körlunum súkkulaði en þær fá ekkert í staðinn. Því dýrara og flottara súkkulaði, því meira ertu ástfangin/hrifin af stráknum!  Konurnar fá svo víst sinn eiginn konudag í mars held ég, og fá þá blóm og eitthvað dúllerí frá körlunum. Þennan daginn þurftum við að vinna svolítið niðrí skóla og ákváðum að gefa öllum samstarfsfélögum okkar súkkulaði, líka Imachi þó að hún sé stelpa :)   Haha, strákarnir fóru samt ekkert smá hjá sér greyin!! En þetta vakti lukku :)

Um kvöldið ákváðum við Ragga að fara rómantískt út að borða saman í tilefni dagsins hehe. Fórum á Mikayla sem við höfðum farið einu sinni á áður og geggjað góður staður. Umkringdar ástföngnum pörum og hjónum leið okkur hálf lellulega þarna haha. Eftir eina rauðvínsflösku og geggjaðan mat ákváðum við að rölta niðrí bæ og kíkja á einn bar eða svo. Ég vildi endilega fara á karaoke-stað og hafði heyrt af einum sem heitir Banana Club, sem Ragga hélt alltaf að væri strippstaður hahaha. Við kíktum því þangað, en nei, þá var þetta bara þannig að allir hafa þarna bara sitt herbergi sem þeir leigja og góla þar í karaoke hehe :) Við slepptum því að fara í þetta skiptið. Við röltum því aðeins áfram og ákváðum að kíkja á kaffihús. Sáum eitt sem utan á stóð “friendtastical” og fannst það of fyndið og kíktum inn. Heyrðu, þar inni sátu þá bara um 10 vesturlandabúar á okkar aldri! Við vorum sko nokkrum mínútum áður búnar að vera að kvarta við hvor aðra að enginn skildi ensku og enginn gæti leiðbeint okkur um cool staði!  Þetta voru sem sagt krakkar sem vinna allir við enskukennslu á svæðinu og flestir frá Bandaríkjunum, Kanada og Ástralíu. Þau fóru svo með okkur á annan stað þar sem enn fleiri vesturlandabúar hanga og við kynntumst fullt af skemmtilegu fólki. Þar sem við misstum af síðustu lestinni heim endaði kvöldið í tjútti langt fram á nótt með nýju vinunum okkar.

 

19. febrúar

TOKYO-FERÐ! Held ég muni nú bara setja þá ferð í aðra bloggfærslu, en þangað til, TOKYO ER ÆÐI!!!! :)

 

Steik, SPA, Shido-temple og skokk 29/01/2009

Flokkað undir: Uncategorized — daggadua @ 6:19 PM

Jeminn hvað tíminn flýgur áfram, janúar alveg á síðustu metrunum og við búnar að vera í Japan í 3 vikur! Þó svo að allt sé orðið mun kunnuglegra hérna núna er ávallt eitthvað sem kemur okkur á óvart á hverjum degi. Í dag þegar ég labbaði í skólann ætlaði ég ekki að trúa mínum eigin augum, en fyrir utan skólann er riiiisastór lóð og þar stóðu tveir menn með garðslöngur og voru að spreyja grasið grænt!!!! hahahaha, sjæse, now i´ve seen it all! :)

Maður að mála grasið grænt fyrir utan skólann!

Maður að mála grasið grænt fyrir utan skólann!

Síðasta helgi var frábær. Á föstudagskvöldinu eftir skóla tókum við lestina til Takamatsu og ákváðum að skella okkur á veitingastað sem við sáum í síðustu bæjarferð. Ég var sem sagt búin að vera með eitthvað svaka craving í steik undanfarna daga og þessi veitingastaður hafði lógó sem var með teikningu af nauti hehe, þannig að við ákváðum að hann hlyti nú að bjóða upp á steik. Þegar við komum inn og var boðið sæti sáum við að öll borðin höfðu innbyggt grill í miðjunni! Fengum afhenta matseðlana, en nei nei, þeir voru bara með japönskum texta og engum myndum!! Erum orðnar svo góðu vanar því að allir matseðlar hérna eru með myndum eða að staðirnir hafa skáp með uppstoppuðum mat til sýnis! Anywho, ég tók upp japönsku orðabókina mína og reyndi að þýða eitthvað af þessu, en komumst fljótlega að því að við vorum að panta af drykkjarmatseðlinum hehe. Heyrum þá á næsta borði “Can I help you girls?”. Yessss, á næsta borði var mjög indæll japanskur strákur sem talaði mjög góða ensku og hjálpaði okkur að panta mat. Hann sagði að staðurinn byði aðeins upp á nautakjöt af ýmissi gerð þannig að þess vegna væru engar myndir :) Hann pantaði alveg heilan helling af alls konar kjöti og grænmeti sem við fengum svo á borðið og grilluðum sjálfar! MEGA gaman og góður matur!!! :D   Væri sko alveg til í að hafa einn svona stað heima á Íslandi!

)

Gaurinn að hjálpa okkur að panta af matseðlinum. Ég að springa úr kæti :)

 img_2054

Sváfum vel út á laugardeginum og ákváðum að taka lest í eitt SPA sem okkur hafði verið sagt frá. Eftir hálftíma labb á lestarstöðina í skítakulda og roki komumst við að því að við þurftum að bíða í klukkutíma eftir lestinni! klukkan var orðin svo margt og okkur var boðið í nýársveislu á Orange Jam kl 19 þannig að við hringdum bara í Katoh-san og hún var svo yndisleg að skutla okkur. Þetta Spa var sko ekki síðra en hið fyrra! Fullt af alls konar heitapottum, úti og inni, sturtum, gufu og síðan var sundlaug þarna líka. Við nýttum því tækifærið og syntum aðeins úr okkur vöðvabólguna eftir vikuna… alveg yndislegt!!!

Um kvöldið fórum við svo á Orange Jam þar sem um 10 manns voru saman komin (komast ekki fleiri inn á staðinn hehe) að fagna nýja árinu. Kyoko-san var búin að undirbúa alls konar mat og við drukkum hvítvín, bjór og sake með :)   Einn gaur drakk einnig nokkra bjóra, nema hvað að á meðan það sá ekki á okkur þá var hann orðinn alveg húrrandi drukkinn og tókst að hrinda niður svona fjórum glösum allt kvöldið hehe… Kynntumst konu einni, Trudy,  frá Kanada sem kennir ensku hérna við háskólann og spjölluðum við hana um reynslu hennar hérna. Hún er sem sagt búin að búa í Japan í 15 ár, en talar ekki japönsku! Við sögðum henni frá dýnuleysinu okkar og hún var svo góð að lána okkur einn futon (japönsk dýna, a.k.a. sæng hehe) daginn eftir, sem er alveg búið að bjarga bakinu á mér.

 

Nýársfögnuður á Orange Jam

Nýársfögnuður á Orange Jam

Á sunnudeginum ákváðum við bara að taka því rólega og fórum á röltið um Shido. Kíktum á Shido-temple sem er alveg ótrúlega flottur staður. Alls konar búdda-styttur, hof og litlir sætir garðar. Mjög róandi að rölta þarna um.

Shido-temple

Shido-temple

Í vikunni byrjuðum við að fara út að skokka, nema það er alltaf komið myrkur þegar við förum úr skólanum þannig að við höfum ennþá ekki fundið alveg nógu góðan skokkhring. En við tókum samt vel á því og hresstumst alveg gífurlega við hreyfinguna. Erum síðan komnar með eitt hjól að láni og bíðum eftir öðru, þannig að bráðum verðum við brunandi út um allan bæ :) Úff, það verður sko munur! Getum þá farið mun hraðar yfir og hjólað út á lestarstöð.

Í næstu viku er okkur síðan boðið svaka fínt út að borða í Takamatsu, og er kvöldverðurinn til heiðurs okkur haha!!! Makino-san sagði að þetta væru hátt settir embættismenn í Takamatsu, forstjóri einhvers flugfélags og ég veit ekki hvað og hvað sem vildu fá að hitta okkur!! Sé fyrir mér að tekið væri svona á móti skiptinemum heima á Íslandi haha, bara forstjóri Icelandair og borgarstjórinn hehehe….

En jæja, best að fara að lesa vísindagreinar… 

Ja mata  (…bless á japönsku)

Dagrún

ps. mun setja fleiri myndir inn á facebook…

 

Vúhú, helgarfrí! 23/01/2009

Flokkað undir: Uncategorized — daggadua @ 12:45 PM

Haha, elsku mamma mín, ég hef greinilega gert þér grikk með því að hafa síðasta bloggtitil sem “naked spa” hahaha! Bara alls konar dónasíður að poppa upp?! Hummm, ég skil ekki alveg af hverju það gerist hjá þér, en ef einhver lendir í tölvuveseni þá ert það nú oftast þú dúllan mín hehe :o ) Biddu pabba eða Ríkey um að tékka á TrendMicro stöðunni hjá ykkur og hvernig svona spam-stillingar eru stilltar. En hvenær poppa þessar síður upp???  Æ, ég trúi nú að þú hafir fengið hland fyrir hjartað þegar þetta réðst á þig hehe! Sé þig alveg fyrir mér niðrí tölvuherbergi fríkandi út hehehe…

En já, þessi vika er bara búin að vera svo einsleit að ég hef eiginlega ekki nennt að blogga um hana. Við erum bara búnar að vera í skólanum frá kl. 9 á morgnana til 8-9 á kvöldin :/ Ragga er reyndar búin að vera miklu meira á fullu en ég, því prófessorinn okkar og undirmaður hans fara í dag til Tokyo á einhvern fund/ráðstefnu um mísellur (það sem Ragga er að rannsaka). Þau hafa því verið alveg á milljón að reyna að fá einhverjar útkomur fyrir fundinn. Ég hef mestmegnis verið að lesa og finna mér heimildir og að framkvæma forprófanir á efninu mínu. Nú þegar hef ég dauða tveggja rotta á samviskunni :(  Ég fæ skinn af rottukvið tilbúið í álpappír, og það dugar mér í tvær flæðisellur (sjá meðfylgjandi mynd). En eins og Ragga huggaði mig við, þá hefðu þessar rottur ekki orðið til nema af því að ég þurfti að nota þær, hahaha. Fannst þetta snilldar röksemdarfærsla, og kannski ágæt í siðfræðilegar hugþenkjur :) Þær fá allaveganna 5 vikur af pottþétt fínu lífi.

Flæðisellurnar minar

Flæðisellurnar mínar

Einnig er sko þvílíkt gert vel við okkur hérna, því að ef okkur vantar eitthvað í rannsóknirnar okkar, þá er það bara pantað á staðnum! Og eiginlega sama hvað það kostar! Ég er núna að bíða eftir segulhræruborðinu mínu fyrir flæðisellurnar mínar. Haha, ég sé það fyrir mér að þetta væri gert heima!!! 

Ragga við skrifborðið okkar. Svo sést þarna i samstarfsfélaga minn.

Ragga við skrifborðið okkar. Svo sést þarna í samstarfsfélaga minn.

Við höfum því núna í vikunni bara oftast fengið okkur bollanúðlur og eitthvað létt í hádeginu, og svo á kvöldin farið á Orange Jam. Kyoko-san, sú sem á staðinn, er svona eins og mamma okkar :) Alltaf voða hlýlegt að koma til hennar og setjast við borðið og spjalla á meðan hún eldar handa okkur dýrindis máltíðir (fyrir mjög lítinn pening). Síðan er Katoh-san líka alltaf þarna á kvöldin, þannig að okkur vantar aldrei félagsskap á Orange Jam.

Orange Jam, besti staðurinn i bænum!

Orange Jam, besti staðurinn í bænum!

Inni á Orange Jam. Fremst er Makino-san, leiðbeinandinn okkar, og svo fyrir aftan hann er Kurita-san, undirmaður hans.

Inni á Orange Jam. Fremst er Makino-san, leiðbeinandinn okkar, og svo fyrir aftan hann er Kurita-san, undirmaður hans.

Á miðvikudagskvöldið var Ragga svo rosalega lengi í skólanum að ég ákvað að fara út í búð og versla í fyrstu máltíðina sem við eldum heima :) Ég steikti alls konar grænmeti eins og papríku, belgbaunir, baunaspírur og sveppi (sveppirnir eru alveg geggjaðir hérna!). Til þess notaði ég ólífuolíu, smá sojasósu og svartan pipar. Síðan steikti ég kjúklingabita og notaði einhverja kryddsósu sem ég fann í búðinni (náttúrulega alveg hrikalega erfitt að versla í búðinni, maður þarf bara oftast að giska hehe). Með þessu var salat og smá brauð og niðurstaðan var bara ansi góð! :p

Reyndar er ekkert endilega neitt ódýrara fyrir okkur að elda heima, en við getum þá allaveganna eldað okkur akkúrat það sem við viljum.

Ég að elda fyrstu máltiðina i glænýja pottinum okkar.

Ég að elda fyrstu máltíðina í glænýja pottinum okkar.

 

)

Voða glæsilegt hjá okkur :)

Um helgina munum við reyna að finna okkur nýtt SPA og fara snemma á laugardeginum því okkur er svo boðið í partý um kvöldið á Orange Jam. Kyoko-san ætlar að bjóða upp á alls konar áramótamat, hvað sem það felur í sér! Sunnudagurinn er enn óráðinn, en við förum pottó að skoða eitthvað, því af nógu er að taka :)

[Til mömmu]

Það væsir ekki um okkur mamma mín og okkur er ekki kalt hehe. Reyndar er alltaf frekar erfitt að fara í sturtu á morgnana því að loftræstingin er bara inn í svefnherbergi þannig að frammi er alltaf ískalt á morgnana! En það er bara hressandi. En góð hugmynd hjá þér með eggjabakkadýnurnar! Við þurfum að grennslast fyrir um hvar við gætum fengið slíkt. Hitt gengur allaveganna ekki til lengdar, því við erum eins og tveir gigtarsjúklingar á morgnana :(  

Ég vona að þið hafið það öll gott þarna heima í kreppuástandinu. Ekkert smá furðulegt að vera svona langt í burtu og lesa um þetta á hverjum degi á mbl.is!! Ég vona að allt þetta ofbeldi fari ekki versnandi, alveg skelfilegt að sjá! Maður finnur mikið til með lögreglumönnunum að þurfa að standa sína vakt á hverjum degi! Líka mjög leiðinlegt að heyra með allar breytingarnar á NM, öll þessi góða uppbygging farin fyrir bí?? Úff, ég sendi þér baráttukveðjur og vona að einhver farsæl lausn finnist á þessu!! Þú lætur mig vita með gangi mála.

Jæja, hefur Pjakkur verið til friðs undanfarið eftir síðast fugl sem þú sagði mér frá? Er hann enn með bjölluna? Haha, ég sé Pollý gjörsamlega fyrir mér í taugaáfalli með bjöllu um hálsinn!! Hún er náttúrulega aaaðeins of nevrótísk til að þola slíkt litla greyið!

Jæja, best að fara að lesa eitthvað… ekki mikið meira til að segja frá í bili, en ég blogga aftur eftir helgi :)

Knús á línuna,

Dagrún

Á Gennai, Udon-núðlustaðnum (sjá siðasta póst). Þarna er Katoh-san og maður úr skólanum. Úff, ég gat sko ekki setið svona "Japanese-style" við borðið lengi, hætti að finna fyrir tánum minum!!

Á Gennai, Udon-núðlustaðnum (sjá síðasta póst). Þarna er Katoh-san og maður úr skólanum. Úff, ég gat sko ekki setið svona "Japanese-style" við borðið lengi, hætti að finna fyrir tánum mínum!!

 

Eigandi Gennai, hún er alveg einn meter á hæð hehe!

Eigandi Gennai, hún er alveg einn meter á hæð hehe!
 

Naked SPA 19/01/2009

Flokkað undir: Uncategorized — daggadua @ 9:42 PM

Jæja, þá er mánudagur senn á enda, kl er 21 og við erum ennþá í skólanum. Frekar rólegur lab dagur hjá mér, en Ragga er búin að vera á milljón að vinna við sýnið sitt :/ Ég er bara búin að vera á skrilljón við að finna alls konar heimildir og leita að hentugum lyfjum til að nota sem viðmið. Helgin var samt alveg æði hjá okkur. Vorum reyndar alveg hrikalega lengi í skólanum á föstudag, þannig að við fórum um kvöldið að leita að veitingastað til að borða á. Fundum engan nýjan, þannig að við skelltum okkur á “Family restaurant” sem við höfðum prófað einu sinni áður. Reyndar mest lítið “family” við hann, því fólk situr þarna og strompreykir með börnin sitjandi við hliðin á sér!! Það má reykja alls staðar í Japan og alveg hryllilega margir reykja!!  Fengum okkur einn öllara með matnum og röltum svo heim á leið. Kíktum við í Sunkus (sem er n.k. Select) og keyptum okkur sitthvorn bjórinn til að sötra heima. Hmmm, það plan gekk ekki aaaalveg, því það eina sem við náðum þegar heim var komið var að skipta einum bjór á milli okkar og steinsofna yfir bíómynd hehehe…

Sváfum vel út á laugardaginn (ömm, eða sem sagt eins vel og “vel” þýðir á þessum dýnum) og skelltum okkur með lest til Takamatsu, sem tekur svona ca 30 mínútur. Við vorum búnar að sjá kaffilatte-ið á Tully´s  í hillingum, þannig að ferðin var nú líka til þess gerð að fá okkur gott kaffi hehe, sem virðist vera ómögulegt hérna í Shido :/ Tókum síðan strætó þaðan til Youme town verslunarmiðstöðvarinnar og eyddum deginum þar. Við erum svo mega fátækar þannig að við gerðum nú bara mestmegnis window-shopping, einnig er bara allt frekar dýrt miðað við heima. Eini sénsinn kannski að gera góð kaup, er að núna eru útsölur og afslátturinn fer stigvaxandi… þannig að kannski við kíkjum bara aftur bráðum ;)   Fórum svo niður í bæ til að finna okkur gott steikhús (vorum búnar að hugsa svo mikið um að fá okkur djúsí steik og kartöflu hehe), sem gekk bara algjörlega á afturfótunum. Enginn skildi hvað við vorum að leita að, ótrúlega mörg veitingahús voru lokuð (á laugardagskvöldi hmmm), einhver þjóðverji sendi okkur í hálftíma leit að stað sem við fundum alls ekki þannig að lokum eftir svona 2ja tíma göngu enduðum við á einhverjum crappy ítölskum veitingastað og fengum okkur pizzu, bolognese og ódrekkanlegt rauðvín!  Haha, við vorum svooo búnar á því eftir daginn, en ákváðum samt að finna okkur einhvern bar til að chilla smá á og fá okkur drykk.

Röltum einhverja götu sem var full af allskonar skiltum sem bentu til að væru barir, en þegar við ætluðum að labba inn á einn slíkan pompaði kjálkinn á dyraverðinum niður á gólf og hann bara “No, no, no, no” hahaha… þetta var greinilega ekki aaalveg ætlað konum þarna inni, enda þegar betur var að gáð, þá hétu margir staðirnir eitthvað “princess” og voru með bleikum og rauðum skiltum hehehe…

En jæja, fundum einn stað að lokum, og vorum einu kúnnarnir þar inni. Fengum okkur tvo bjóra hvor og barstelpan bauð okkur hnetur með. Voða kósý fílingur, jazztónlist á fóninum og soldið grúví staður. En nei, nei, fórum svo að borga reikninginn, og hljómaði hann upp á 3800 Yen!!! Gellan rukkaði okkur sem sagt 800 yen á bjór og bætti svo 600 yenum fyrir nokkrar hnetur, arrrrggggg!!!! Þið farið bara á kaupþing.is og do the math!  Síðasta skipti sem við kaupum okkur bjór á bar býst ég við hehe :)

Á sunnudeginum sváfum við aftur út, enda svoleiðis búnar á því eftir laugardaginn. Ákváðum því að taka bara chill dag og finna okkur eitthvað gott SPA. Vorum búnar að fá smá leiðbeiningar um að komast í eitt slíkt, en hringdum samt í Katoh-san til að tékka betur á því. Æ, hún mesta dúllan, býður okkur að hún keyri okkur í svaka fínt SPA soldið langt í burtu! Að sjálfsögðu neituðum við því ekki. Katoh-san hjálpaði okkur svo að borga og leigja okkur handklæði og sagði okkur svo bara að hringja þegar við værum búnar.

Jæja, það fyrsta sem kom í ljós var að sundfötin okkar voru algjörlega óþörf. Maður fékk smá þvottapoka til að hafa með sér inn í SPA-ið til að sitja á eða hvað sem er. Þá voru það sturturnar! Jahá, hver sturta hafði pínkulítinn plastkoll sem maður átti að sitja á og svo fyrir framan þig var spegill og þannig áttir þú að þvo þér hahaha. Mjög spes!! Síðan var þetta bara frekar stór salur með um 10 stykkjum af alls konar heitapottum, mismunandi gerðum af sturtum og tveimur saunum. Síðan var einn pottur utandyra með geggjað útsýni yfir hafið og eyjarnar! :) Maður vandist því nú bara á no-time að vera naked innan um allar kellingarnar hehe… Úffff, þetta var svoooo geggjað og allir pottarnir voru svo vel heitir og fínir að vöðvabólgan út af dýnunum skánaði nú alveg til muna.

Eftir fína SPA-ið fengum við okkur að borða á japönskum veitingastað sem var á sama stað. Ummm, grillaður lax og einhvers konar bolognese bakað ofan í eggaldini!! Slef, þetta var alveg besti lax ever :p

Komum svo aftur vel afslappaðar til Shido og fórum í smá verslunarleiðangur fyrir heimilið. Katoh-san bauð okkur svo á traditional Udon-núðlu veitingastað um kvöldið og einhver strákur úr skólanum kom með. Það hafa allir verið að spurja okkur svona tíu sinnum á dag hvort við höfum smakkað Udon-núðlur, og við alltaf “no, not yet”, en vei, nú getum við sagt jubbsurí :)   Þetta eru sem sagt mjög breiðar núðlur sem eru mjög spes fyrir þetta hérað. Þær eru síðan bornar fram í einhvers konar súpu. Nema hvað að “rétta” leiðin við að borða þær er víst að sjúga/slafra þeim upp í sig og láta þær svo rennnnna ofan í maga án þess að tyggja!!!! Ömm, ég og Ragga létum það nú bara eiga sig og tuggðum þær bara vel og vandlega. Með þessu var svo borið fram “Tempura” sem er djúpsteikt grænmeti og t.d. rækjur í einhvers konar deigi. Þetta var nú allt saman bara alveg voða gott, en varla “figure-friendly” hehe…

En jæja… Ragga er loks búin með verk dagsins, og við getum þá farið að fá okkur kvöldmat… kl 22!!

Later… D

 

Símanúmer 16/01/2009

Flokkað undir: Uncategorized — daggadua @ 12:12 PM

Skólinn reddaði mér og Röggu sitthvoran gemsann þar sem að okkar virka ekki hérna. Símanúmerið mitt er sem sagt:

090-2825-7692

og Röggu númer er:

090-2897-1708

En við megum helst ekki hringja mikið úr þeim því það kostar svo svakalega mikið. En það væri ágætt fyrir þig elsku mamma mín að skrifa númerið niður, og þú getur þá hringt frekar í mig ef það er eitthvað spes sem liggur á. Það þarf þá að bæta við japanska landsnúmerinu fyrir framan. Spurning líka um að Ríkey kenni ykkur pabba á Skype, því þá gætum við mælt okkur bara mót á því einhvern daginn :)

Kossar og knús, Dagrún

 

Geggjuð máltíð! 15/01/2009

Flokkað undir: Uncategorized — daggadua @ 6:15 PM

Duttum svo sannarlega í lukkupottinn í gær! Vorum búnar að vera í skólanum allan liðlangan dag, þegar Makino-san (prófessorinn okkar) kom til okkar og bauð okkur út að borða því að kollegi hans var í heimsókn í bænum. Við fúlsuðum nú ekki við því, fyrst að enn sem komið er er örbylgjuofn eina leiðin okkar til að elda kvöldmat hehe… Litla sæta vinkona okkar, Imachi-san, kom einnig með og voru tveir leigubílar pantaðir. Heyrðu nei nei, veitingastaðurinn var sko enginn local staður heldur staðsettur í Takamatsu, sem er alveg dágóðan spöl frá Shido. Staðurinn sem við fórum sem sagt á heitir Hamakaidoh (sem þýðir basically Strandgata) og býður upp á traditional japanskan mat. Þurftum nú reyndar ekki að sitja á hnjánum, en þurftum að fara úr skónum áður en við settumst við borðið.

japan1_0146

Við skildum að sjálfsögðu ekki baun í matseðlinum, enda þurftum við þess heldur ekki því þeir kumpánar sáu sko algjörlega um það! Fyrst á borð kom nú japanski bjórinn, sem er virkilega góður :) Þar á eftir kom diskur með alls konar hráum fisk, kjöti, smokkfiski og hrísgrjónakökum. Þennan mat átti sem sagt að elda á þar til gerðum potti/grilli sem stóð á miðju borðinu, og svipar til þess sem var notað hérna í gamla daga til að elda við matarborðið. Mjög töff. Og yummmmmy!!!! Var þetta gott! Túnfiskurinn var algjört æði, grillaður öðru megin, hrár hinum megin. Kjötið var líka svakalega gott, með smá grillsósu. Smokkfiskurinn var einnig mjög bragðgóður og kjötmikill (við lögðum nú samt ekki í að smakka litlu angana). Mjög spes, það voru bara 3 bitar af hverju, þannig að við stelpurnar áttum greinilega bara að fá þennan mat. Þeir vinir drukku bara bjórinn sinn á meðan.

japan1_0152

Jæja, næst á dagskrá! Risastórt trog eins og skip í laginu, stútfullt af sashimi (hráum fisk)!! Túnfiskur, lax, makríll, smokkfiskur og alls konar furðulegt sem við höfum ekki séð áður. Úffffff, besti túnfiskur og lax sem ég og Ragga höfum smakkað! hreinlega bráðnaði í munninum :p Með þessu fengum við hvítvín til að skola matnum niður.

 

Sushi-báturinn rosalegi!

Sushi-báturinn rosalegi!

Haha, ég lenti nú reyndar í frekar óþægilegu atviki á þessu augnabliki! Ég ákvað að prufa nú smokkfiskinn, fyrst að hann hafði bragðast svo vel þarna fyrst. Heyrðu, nei nei, ég komst sem sagt að því að hrár smokkfiskur er jafn seigur og skósóli miðað við að hann sé mjög ætilegur grillaður!! Hahaha, þannig að þarna var ég, með risa munnbita, sem ekki var hægt að tyggja né kyngja, engar servíettur nálægt og búin með hvítvínið mitt! Vá, það fóru svo margir valmöguleikar fljúgandi um hausinn á mér hahaha: td.

a) nota litla þvottastykkið sem maður fær alltaf og skyrpa í það

b) taka flykkið út úr munninum með fingrunum

c) afsaka mig með fullan munninn og fara á salernið

d) á þessum tímapunkti var ég byrjuð að kúgast svo mikið að ég hélt að ég myndi hreinlega kasta upp yfir borðið haha

e) reyna að halda þessu drasli í munninum eins lengi og hægt var, og leyfa ensímunum í munninum að mýkja helvítið og hugsa happy thoughts á meðan

Niðurstaðan var sem sagt e). Hahaha, shit, var að þessu í svona rúmar 5 mínútur án þess að neinn tæki eftir og gat svo tuggið smá af þessu og gleypt að lokum!!!

Úff, var ég fegin eða hvað þegar næsti réttur kom!! Ótrúlega góðir ofnréttir með krabbakjöti annars vegar og ostrum hins vegar, blandað við makkarónur, sósu og ost! Ummm, geggjað! Einnig fengum við alls konar spjót með djúpsteiktu grænmeti, rækjum, kjöt og fleira. Á meðan á öllu þessu stóð fengum við líka að smakka Sake, sem var nú bara alveg mjög gott. Einnig keyptu þeir heila flösku af 25% víni sem er gert úr sætum kartöflum!! Við fengum það “on the rocks” á meðan þeir blönduðu því við vatn haha!  Svo horfðu þeir á okkur drekka slatta af þessu, og göptu yfir því að ekkert sást á okkur!! Alveg “are you just fine? you are certainly strong, true vikings”!! Hehe, við fundum nú bara smá á okkur, en okkur sýndist nú vinir okkar vera orðnir alveg vel tipsy :) Þeim fannst ekkert smá gaman að horfa á okkur borða og drekka þetta kvöldið, og hrósuðu okkur hástert fyrir að hafa prófað allt og að drekka þá undir borðið hehe ;)

Kellingarnar á Grund fóru sem sagt að sofa alveg kl.24 þetta kvöldið!!! hahaha, alveg svakalegt fyrir okkur! Vöknuðum síðan hressar kl.7:30 til að fara í skólann.

Nú er sem sagt búið að negla niður viðskiptaferð fyrir okkur til Tokyo 19. febrúar, alla helgina!! Á föstudeginum er okkur sem sagt boðið að fara á symposium (málþing) um nano-technology!!! Geggjað spennó!! búið að bóka flug fyrir okkur og rosaflott hótel :D síðan munum við hitta kollega Makino-san aftur þarna í Tokyo, og hann vil sko bjóða okkur aftur út að borða haha! Við höfum greinilega heillað hann upp úr skónum!

Sem sagt, alls konar að gerast og alls konar plön. Jæja, klukkan er orðin rúmlega 18 þannig að við þurfum að fara að koma okkur bráðum heim. Fólk er svo svakalega lengi í skólanum hérna alla daga, þannig að við fylgjum bara því plani :)

Knús og kossar,

D

japan1_0124

Útsýni yfir hluta af bænum

japan1_0100

Ragga kát inn í risastóra herberginu okkar :)

Kojan okkar!

Kojan okkar!

Ég i svaka þunga kimonoinum.

Ég í svaka þunga kimonoinum.

 

Tvitugu skvisurnar á stóra deginum!

Tvítugu skvísurnar á stóra deginum!

 

Dagarnir 10.-14. janúar 14/01/2009

Flokkað undir: Uncategorized — daggadua @ 6:15 PM

Við fengum að vita að á mánudeginum 12. jan væri frídagur í Japan, þannig að veiii, löng helgi :) Eyddum því helginni í að aðlagast, skoða bæinn, versla fyrir íbúðina og allskonar stúss. Erum búnar að finna local búðina okkar, Marunaka, sem er svona nokkurs konar Hagkaup, hægt að fá alls konar hluti þar, allt frá kolkrabbaöngum upp í brjóstahaldara… sem sagt, þetta helsta :) . Höfum samt varla hætt okkur út í að kaupa neitt flóknara en jógúrt, banana, brauð og tilbúna sushi-bakka, þar sem allt er merkt á japönsku og líkist engan veginn einhverjum mat sem maður kannast við!

Fundum einnig búð, sem heitir Seria, þar sem allt kostar 100 yen (ca. 130 krónur) og svipar svolítið til Tiger nema að úrvalið er mun meira og fjölbreyttara. Keyptum þar allt í íbúðina, s.s. hnífapör, klósettbursta, viskastykki, glös, bolla, herðatré o.fl. Svona flest í þessari búð er í strumpastærð, úr bleiku plasti og afskaplega kjút. Klósettburstinn okkar er sem sagt jafn stór og uppþvottabursti! Íbúðin okkar er sem sagt orðin Innlit-Útlit hæf núna, og þemað er ljósbleikt og ljósblátt, voða smart allt saman :)

Á laugardaginn fór Katoh-san og Imachi-san með okkur til Takamatsu í risastórt moll sem heitir Youme-town (..við héldum að þetta þýddi sem sagt “Ég og Þú-Bærinn”… en komumst að því að Youme þýðir draumur á japönsku). Við keyptum okkur hárþurrku (bleika, of course) og Ragga keypti sér skó þar sem stígvélin hennar voru eiginlega búin að ganga sitt síðasta.  Þetta var nett kreisí upplifun að koma í þetta moll, því allt er svo yfirdrifið. Rosalegt að fylgjast með tískunni þarna! Enginn er maður með mönnum nema að eiga tösku, skó eða gleraugu með þekktu merki, eins og Burberry´s, Gucci eða eitthvað slíkt. Okkur Röggu leið nú bara hálfpartinn lúðalega þarna haha! Svo vottaði nú fyrir smá Tokyo tísku á meðal stelpnanna; stutt pils, háir sokkar, svaka skrautlegir skór og alls konar glingur.  Stoppuðum stutt í mollinu en ég og Ragga plönum að fara þarna einhverja helgina og eyða kannski, tja, heilum degi eða svo þarna inn ;)

Frídagurinn á mánudeginum er sem sagt tileinkaður ungu fólki sem verður tvítugt, eða “Becoming of age ceremony”. Held að þetta sé kannski svona n.k. ferming að þeirra hætti. Á sunnudeginum var sem sagt haldin athöfn út af þessu þar sem allar stelpurnar eru klæddar í kimono og strákarnir í jakkaföt eða traditional japanskan búning. Við kíktum á athöfnina og misstum kjálkann!! Þarna streymdu hundruð tvítugra stelpna í kimono, með svakaleg hair-dú og make-up, með geðveikislegar gervineglur, töskur og pelsa. Ótrúlegasta sýn ever!! Allar héldu þær á gemsunum sínum (sem eru b.t.w. eins og framlenging á hendinni á flestum japönum!) og sumar stóðu úti í smók… þetta passaði ekki alveg við hina fáguðu ímynd kimonosins að okkur fannst!!

Á mándaginn fórum við með Makino-san til Takamatsu á japanska Fine Arts-sýningu í Kagawa Museum. Geðsjúklega kalt úti og mikið rok þennan daginn. Á sýningunni var verið að sýna alls konar litla handgerða kistla með svakalegum smáatriðum, mjög töff! Inni á safninu var hægt að fá að máta n.k. old-style kimono, og fór ég í það hlutverk. Pínkulítið kona klæddi mig í búninginn, sem var í svona 5 lögum og vigtaði um 9 kíló. Ekkert smá töff að fá að máta svona og ekkert smá þungt!! Ég set myndir af þessu inn við tækifæri. Makino-san bauð okkur svo í lunch á kínverskum stað. Fengum ótrúlega góðar og sterkar núðlur :p Held að Japanir séu miða-sjúkir, maður þarf að kaupa miða í allt!! Fyrir utan veitingastaðinn er sem sagt n.k. sjálfsali þar sem þú velur hvaða rétt þú vilt, setur pening í kassan, ýtir á takka og færð miða. Þjónninn tekur miðann, þú sest niður og færð svo matinn þinn! (við þurfum einnig að kaupa hádegismatinn okkar í skólanum úr miðakassa hehe)

Í gær, þriðjudag, fórum við svo í skólann í fyrsta skipti. Hefðum þurft að setja vaselín á tennurnar því við vorum kynntar fyrir svona 30 manns, og vorum komnar með illt í kinnarnar af því að brosa haha… Skólinn er alveg hrikalega flottur!! Lyfjafræðideildin er í tveimur risa byggingum á átta hæðum, og allt er nýtt og flott! Fengum okkar eigin skrifborð á skrifstofu við hliðina á labbinu, og erum með þremur öðrum hérna inni.  Fórum á fund og fengum að vita meira um verkefnin okkar, sem eru mjööög spennandi. Fáum að nota svaka tæki sem við höfum aldrei séð áður :)  

Jæja, held að þetta sé bara ágætt summary yfir það sem hefur gengið á síðustu daga. Við erum mjög ánægðar hérna og það er ný upplifun á hverjum degi! Hef verið að lesa smá á mbl.is og visir.is, og úfffff, ég er bara fegin að vera hinum megin á hnettinum, í burtu frá öllu krepputali!!

Við erum svo svakalega búnar á því eftir dagana, því við löbbum að sjálfsögðu út um allt og erum alltaf að gera eitthvað. Við köllum íbúðina okkar núna Grund, því við erum eins og gamlar kellingar á kvöldin; fáum okkur kvöldmat, klæðum okkur í náttfötin og inniskó, kúrum undir teppi og sofnum kl 21-22 yfir Sex and the city hehehe :)

Jæja, more later kids…. kossar og knús til allra, sakna ykkar already!!

 

Föstudagur, 9. jan: Fyrsti dagurinn í Japan 14/01/2009

Flokkað undir: Uncategorized — daggadua @ 4:23 PM

Þegar við lentum á flugvellinum í Osaka var klukkan um 10-leytið að morgni til. Makino san tók á móti okkur og við sáum frá fyrstu mínútu að þetta væri alveg yndislegur maður, ekkert smá kurteis, hjálplegur og vinalegur! Við tók 3ja tíma rútuferð til Shido-city. Við vorum gjörsamlega að leka niður í rútunni, ekki bara af þreytu heldur var loftræstingin í rútunni stillt á svona 35 gráður celcius, og allir að kafna þarna inni!! Og enginn sagði neitt! Haha, greinilega japanska kurteisin að verki….

Fengum svona nett sjokk samt í byrjun rútuferðarinnar, því í svona hálftíma voru alveg ógeðslegar verksmiðjur svo langt sem augað eygði! Með endalausum strompum og reyk :/  En síðan tók nú sveitin við í lokin, þar sem há fjöll, skógi vaxin, umlykja allt. Tveir japanskir strákar sóttu okkur svo á rútustoppistöðina. Held ég hafi aldrei séð neinn svona sjúúúklega feiminn haha, greyin litlu! Þeir komu varla upp orði og þorðu varla að horfa á okkur, og enskan var sko alveg af skornum skammti! Við vorum keyrðar að íbúðinni okkar, og Makino san lét okkur fá gjafir og nokkrar nauðsynjavörur fyrir íbúðina. Við fengum svona nett menningarsjokk eftir að strákarnir fóru og hugsuðum með okkur “shit, hvað erum við búnar að koma okkur í” hahaha! Íbúðin er náttúrulega alveg pínkulítil og það sem Japanir kalla dýnur, köllum við sængur heima hehe. Allt inní íbúðinni er á japönsku; þvottavélin, eldavélin, fjarstýringar, loftræstingin og já, klósettið hehehe.

shido

Makino san ætlaði svo að koma að sækja okkur 2 tímum seinna og bjóða okkur út að borða. Við vorum svoooo úrvinda eftir ferðalagið og vildum helst bara fara að sofa, en náðum að leggja okkur í klukkutíma. Makino san og Katoh san komu svo og sóttu okkur. Katoh san er alveg yndisleg kona sem vinnur við háskólann og við urðum alveg ástfangnar af henni frá fyrstu stundu. Þau tóku okkur á sætasta veitingastað í heimi, sem heitir Orange Jam, og er í 5 mínútna fjarlægð frá húsinu okkar. Á staðnum er aðeins eitt borð! við borðið geta svona um 8-9 manns setið. Þarna hittum við Kyoko san fyrst, en hún er eigandi og kokkur staðarins, alveg krúttulegasta kona í heimi og talar smávegis í ensku. Hún var búin að gera tilbúið fyrir okkur kjúklingabita, pizzu, franskar, núðlur og lax!! Alveg geðveikt góður matur og fengum hvítvín til að skola þessu niður með. Hittum líka fyrst þarna Imachi san, sem er japanska stelpan sem sendi mér email um veðrið í Japan.

Úff, ég var fegin að við fórum út að borða með fólkinu, því að róaði okkur mjög mikið. Allir voru svoooo yndislegir og forvitnir um okkur, og komu fram við okkur eins og höfðingja! Þó nokkur enskuvandræði, en ekkert sem smá handapot og endurtekningar geta ekki reddað.

Jedúdda, við sofnuðum sko vel þetta kvöldið, kl 22!! Alveg dauðuppgefnar.

 

Konnichiwa! 14/01/2009

Flokkað undir: Uncategorized — daggadua @ 3:54 PM

Halló elsku dúllurnar mínar! Jæja, komin með blogg svona til að “keep you posted” um lífið hér í Japan :) Ég mun reyna að vera dugleg að setja inn myndir líka, en ég held að ég hafi þær síðan bara flestar inn á facebookinu.  Ferðalagið hingað gekk bara mjög vel fyrir sig, fyrir utan rúmlega klukkutímaseinkun á Icelandair-fluginu til London. Gistum eina nótt á hóteli nálægt Heathrow, Hotel Ramada, sem var alveg rosa flott og fínt, thank god! Nema hvað, morguninn eftir mætum við vel snemma í innritun á flugvellinum og lendum á voða næs breskum kalli í afgreiðslunni. Hann byrjar að spurja okkur “ca va?”, og heldur greinilega að við séum franskar! Nei, nei, við leiðréttum það og segjum að við séum íslenskar. Svo heldur hann áfram að rambla um hvað við erum nú fallegar og sætar og jaríjara, voða flörtí. Hann segir að það séu aðeins tvö sæti eftir í vélinni til Japan, og að þau séu alveg aftast. Nú jæja, við sættum okkur alveg við það og þökkum fyrir okkur. Þegar í vélina var komið í Helsinki, kom í ljós að aðeins ca. 1/3 af vélinni var setinn hahaha!!!  Og kallandskotinn tróð okkur í tvö síðustu öftustu sætin með heilu raðirnar lausar fyrir framan okkur! Þá var hann greinilega bara að fokka í okkur haha!   Vá, hvað hann hlýtur að hafa hlegið mikið þegar við fórum úr innrituninni!  Vitum ennþá ekki hvort hann hafi verið að rugla svona í okkur af því að það kom í ljós að við vorum íslenskar eða hvort hann hafi bara verið að djóka :)   Þessi grikkur kom okkur samt síðan bara mjööög vel, því ég gat fengið heila sætaröð og Ragga aðra heila röð, og það var svo dimmt og kósý þarna aftast og enginn umgangur :) Við gátum því dreift vel úr okkur með 3 kodda og 3 teppi hvor ;) Þannig að við vorum alveg “Ha ha, look who´s laughing now”! :o )